Home Fréttir Í fréttum Heimavellir slhf. hefur keypt 139 íbúðir af Íbúðalánasjóði á 1,83 milljarða króna

Heimavellir slhf. hefur keypt 139 íbúðir af Íbúðalánasjóði á 1,83 milljarða króna

108
0

Íbúðalánasjóður og Heimavellir slhf. hafa náð samkomulagi um kaup þeirra síðarnefndu á 139 íbúðum samtals að fjárhæð 1,83 milljarða króna af Íbúðalánasjóði og var samningur þar að lútandi undirritaður í gærkvöldi.

<>

Þann 14. desember s.l. bauð Íbúðalánasjóður til sölu í opnu og gagnsæu söluferli 15 eignasöfn fasteigna sem staðsett voru víða um landið. Í þessu tilfelli er um að ræða sölu á 4 þessara eignarsafna. Fjöldi íbúða í þessum eignasöfnum voru 504 eignir og er því hér um að ræða um 27,4 prósent eignanna sem til sölu voru. Kaupsamningar vegna  sölu annarra eignasafna sem í bárust skuldbindandi tilboð verða undirritaðir á næstu vikum í samræmi við skilmála söluferlisins.

Heimild: Vísir.is