Bæjarstjórn Grindavíkur hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á Hópinu, fjölnotaíþróttahúsi Grindvíkinga.
Íþróttahúsið Hópið í Grindavík var meðal þess sem fór einna verst út úr jarðhræringunum í bænum. Þann 6. febrúar uppgötvaðist risavaxin sprunga undir gervigrasi íþróttahússins. Þá hafði legið fyrir í nokkurn tíma að húsið væri stórskemmt.

KRISTINN MAGNÚSSON
Nú hefur bæjarstjórn Grindavíkur ákveðið að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á íþróttahúsinu. Það var ákveðið á fundi bæjarstjórnar í Tollhúsinu í Reykjavík þann 11. júní.
Heimild: Visir.is