Home Fréttir Í fréttum Ólga meðal í­búa vegna fyrir­hugaðra fram­kvæmda

Ólga meðal í­búa vegna fyrir­hugaðra fram­kvæmda

86
0
Horft yfir Vellina í Hafnarfirði. Verkefni Carbfix mun fara fram sunnan við álverið í Straumsvík sem sést í bakgrunni ljósmyndarinnar. VÍSIR/VILHELM

Ólga er meðal íbúa í Hafnarfirði vegna samkomulags Coda terminal, dótturfélags Carbfix, og bæjarstjórnar um að koma upp borteigum í hrauninu steinsnar frá Völlunum í Hafnarfirði.

<>

Fyrirhugaðir borteigar munu vera tíu talsins en þeir verða nýttir til að dæla koldíoxíð ofan í bergið. Mótmælahópur var stofnaður á Facebook fyrir þremur dögum til að sporna gegn þessum fyrirhuguðu framkvæmdum en hópurinn telur nú um þúsund manns.

„Við förum fram á að fyrirhugaðir borteigar fái aðra staðsetningu fjær mannabústöðum. Við teljum að fyrirhugaðir borteigar og N koldíoxið í setlög, hafi ekki fengið nægilega mikla reynslu til að það sé ásættanlegt að bora 300- 700 metra undir mannabústaði,“ segir inn á mótmælahópnum.

Mótmæla ekki verkefninu sem slíku

Þó nokkrir íbúar virðast vera á móti verkefninu en einn þeirra er Ragnar Þór Reynisson, stofnandi mótmælahópsins.

„Maður setur spurningarmerki við þetta. Það á að dæla niður í þúsund metra dýpi við hverfið. Skoða þarf hvort það séu einhverjir neikvæðir þættir eins og jarðskjálftar og áhrif á grunnvatnið,“ segir hann og bætir við að hann og nokkrir íbúar í Hafnarfirði hafi tekið sig saman og stofnað mótmælahópinn þegar ljóst þótti að framkvæmdirnar yrðu að veruleika.

„Við vorum nokkur þarna í hverfinu sem vildum staldra við. Því þetta er á þessari stærðargráðu. Þetta er mikið og tæknilegt og flókið verkefni. Við erum kannski ekki að mótmæla aðferðinni sem slíkri en að vera svona nálægt byggð.“

Hafa áhyggjur af jarðskjálftum á svæðinu

Ítrekað er á mótmælahópnum að ekki sé mótmælt verkefninu í sjálfur sér heldur að það fari fram í grennd við íbúðahverfi í Hafnarfirði. Meðlimir hópsins kalla eftir frekari rannsóknum og telja að það þurfi frekari reynslu til að vita hvernig áhrif jarðskjálftavirkni á svæðinu muni hafa á verkefnið.

Einn meðlimur hópsins krefst þess að það verði skilyrði fyrir verkefninu að ef skjálfti finnst við niðurdælingu að þá verði niðurdæling stoppuð í viku.

Tankskip muni flytja koldíoxíð til landsins

Ragnar og meðlimir hópsins gagnrýna jafnframt að stækka þurfi höfnina við Straumsvík vegna verkefnisins en það er nauðsynlegt til að taka á móti stærri tankskipum sem munu flytja koldíoxíð til landsins.

Reiknað er með að stækkunin muni kosta á bilinu níu til fimmtán milljarða króna. Í hópnum er tekið fram að ljóst þyki að kostnaður við hafnarframkvæmdirnar muni leggjast á íbúa í bænum enda er stækkunin fjármögnuð af Hafnarfjarðabæ.

„Hvað á síðan að gera við höfnina eftir 30 ár þegar Coda terminal lokar á þessu svæði,“ segir Ragnar.

Ætla ekki að berja í potta

Ragnar kallar eftir því að kosið verði um framkvæmdina meðal íbúa í Hafnarfirði og segir að skammur tími sé til stefnu því að Carbfix stefnir á að tryggja sér starfsleyfi fyrir lok ársins.

„Við erum ekkert að standa upp og berja í potta. Við hefðum viljað fá að vera meiri þátttakendur í umræðunni því þetta er af þeirri stærðargráðu,“ segir hann.

Heimild: Visir.is