Home Fréttir Í fréttum Ekki ó­eðli­legt að líta til þess að byggja hverfi á öðrum stöðum

Ekki ó­eðli­legt að líta til þess að byggja hverfi á öðrum stöðum

65
0
Kristrún Frostadóttir skilur að það séu skiptar skoðanir á þéttingu byggðar. VÍSIR/ARNAR

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir koma vel til greina að skoða að byggja upp ný hverfi á höfuðborgarsvæðinu. Auðvelt sé að vera gagnrýnin á bæði sveitarfélög og ríkið vegna þess hvernig haldið hafi verið á spöðunum í húsnæðismálum.

<>

„Ég sýni því alveg skilning að það eru skiptar skoðanir á því hversu þétt byggð á að vera,“ sagði Kristrún í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar var hún spurð út í skoðun sína á verkum Samfylkingarinnar í húsnæðismálum í Reykjavík.

Kristrún sagði að það væri sameiginleg stefna margra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, ekki bara hjá Reykjavíkurborg, að víkka ekki út höfuðborgarsvæðið umfram ákveðin mörk. Ef það ætti að breyta því þyrfti að taka sameiginlega ákvörðun með fleiri sveitarfélögum.

„Mér finnst ekkert óeðlilegt og ég get alveg skilið það sjónarmið að í erfiðum aðstæðum, eins og núna eru að skapast, þá þurfi stundum að endurhugsa ákveðna þætti. Það þýðir ekki að þú fellur frá öllum þéttingarreitum í Reykjavík. En mér finnst ekkert óeðlilegt að það sé litið til þess að byggja hverfi á öðrum stöðum, en þá þarf að fara fram einhver heildargreining á því.“

Hefði það þá ekki að gerast fyrir löngu síðan?

„Það hefur svo margt breyst á húsnæðismarkaði bara á tímabili þessarar ríkisstjórnar. Fólksfjölgun til dæmis í Reykjavík er miklu, miklu, miklu meiri en áður var spáð. Eftirspurn eftir húsnæði er miklu meiri en áður var spáð,“ segir Kristrún.

„Ég get alveg verið mjög gagnrýnin á þetta, bæði gagnvart sveitarfélögum og ríkinu. En staðreyndin er samt sú að við erum í rosalegri uppbyggingu.“

Staðreyndin er sú að það hefur ekki verið haldið almennilega á þessum málum. Og stefnan hefur ekki verið góð.

„Það er rétt. Það hefur ekki verið haldið almennilega á þessum málum, en partur af því að eftirspurn hefur vaxið langt umfram framboð. Síðan hefur vantað fjármagn inn í uppbyggingu á félagslegu húsnæði og þess háttar.“

Heimild: Visir.is