Home Fréttir Í fréttum Hitaveitulagnir endurnýjaðar á Hvammstanga

Hitaveitulagnir endurnýjaðar á Hvammstanga

47
0
Séð norður eftir Höfðabraut. Mynd: hunathing.is

Framkvæmdir við endurnýjun hitaveitulagna á Hvammstanga munu hefjast næstu daga. Lagnir verða endurnýjaðar við Veigarstíg, norður Höfðabraut og upp Lækjagötu að Hvammstangabraut.

<>

Verktími er áætlaður frá 22. maí til 30. ágúst og kappkostað verður að ljúka verkinu á sem skemmstum tíma, að því er segir á vef Húnaþings vestra. Íbúar og vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdinni og því raski sem hún kann að valda, þolinmæði. Verkið er mjög brýnt til að tryggja afhendingaröryggi á staðnum.

Til að byrja með verður lokað fyrir bílaumferð í nokkra daga á Veigarstíg. Á meðan á framkvæmdum stendur verður reynt að hafa að lágmarki annan helming Höfðabrautar opinn fyrir umferð til suðurs. Ekki verður hægt að hafa gangstéttar opnar fyrir gangandi/hjólandi umferð.

Verktaki jarðvinnu er Gunnlaugur Agnar Sigurðsson en lagnavinna er í höndum starfsmanna þjónustumiðstöðvar. Ekki á að koma til truflana á afhendingu á heitu vatni nema þegar nýjar heimtaugar eru tengdar í hús.

Heimild: Huni.is