Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Uppbygging hafin í Íþróttahúsi Vesturgötu á Akranesi

Uppbygging hafin í Íþróttahúsi Vesturgötu á Akranesi

88
0
Frá vinstri: Alfreð Alfreðsson, Anna María Þráinsdóttir, Einar Örn Hallgrímsson, Berglind Guðjónsdóttir, Haraldur Benediktson, Sigurður Páll Harðarson, Anna Sólveg Smáradóttir

Þann 23.apríl síðastliðinn undirrituðu Akraneskaupstaður og Land og verk verksamning um framkvæmdir í Íþróttahúsinu á Vesturgötu. Verktaki hefur nú þegar hafið störf við uppbyggingu á íþróttasalnum.

<>

Um er að ræða endurnýjun og lofta- og veggjaklæðningum, innihurðar verða endurnýjaðar. Sett verður upp nýtt loftræsikerfi og þá verða raflagnir og pípulagnir endurnýjaðar. Að auki verða gaflar hússins einangraðir og klæddir.

Heimild: Akranes.is