Home Fréttir Í fréttum Verkís skilaði 657 milljóna hagnaði

Verkís skilaði 657 milljóna hagnaði

78
0
Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís. Ljósmynd: Aðsend mynd

Rekstrartekjur verkfræðistofunnar jukust um 23% milli ára og námu 9 milljörðum í fyrra.

<>

Verkís verkfræðistofa hagnaðist um 657 milljónir króna á síðasta ári, samanborið við 445 milljóna hagnað árið áður. Það samsvarar 48% aukningu milli ára.

Stjórn Verkís leggur til að 575 milljónir króna verði greiddar í arð til hluthafa á árinu 2024, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins.

Rekstrartekjur verkfræðistofunnar námu 9 milljörðum króna og jukust um 23% milli ára.

Rekstrargjöld jukust um 21% frá fyrra og ári og námu 8,1 milljarði. Þar af voru laun og annar starfsmannakostnaður rúmir 6 milljarðar króna. Ársverk hjá samstæðunni voru 351 í fyrra samanborið við 325 á árinu 2022.

Skjáskot af Vb.is

Eignir Verkís voru bókfærðar á 3,1 milljarð í árslok 2023 og eigið fé var tæplega 1,5 milljarðar króna. Verkís er í eigu starfsfólks og voru hluthafar 90 í lok síðasta árs.

Heimild: Vb.is