Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 22.05.2024 Hálsaskógur, Hálsaborg leiksskóli. Endurgerð húsnæðis

22.05.2024 Hálsaskógur, Hálsaborg leiksskóli. Endurgerð húsnæðis

85
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hálsaskógur, Hálsaborg leiksskóli. Endurgerð húsnæðis, útboð nr. 15997

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í niðurrifi innanhúss sem og á þakvirki, fullnaðarfrágangi að utan og innan ásamt hurða- og gluggaísetningu. Núverandi bygging er hefðbundið staðsteypt hús byggt árið 1980.

Steyptir burðarveggir byggingarinnar munu halda sér eins og það er í dag. Frágangur að innan felst í uppsetningu inniveggja, hurða, loftaklæðningar, innréttinga og loftræsingar ásamt öðrum húskerfum, raflagnir, neysluvatnslagnir og gólfhita.

Helstu verkþættir og magntölur eru: 

  • Einangrun og klæðning útveggja          225   m2
  • Endurgerð þakvirkis                            470   m2
  • Gluggar og hurðir                                 35   stk.
  • Innveggir                                           430   m2

Öll tækni- og lagnakerfi hússins s.s. loftræsikerfi, vatns-, raflagnir í 447 m2 húsnæði.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00  þann 2. maí 2024.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 22. maí 2024