F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2024, útboð 1, vestan Reykjanesbrautar, útboð nr. 15983
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í malbikun gatna Reykjavíkur vestan Reykjanesbrautar auk malbikun stofnbrauta austan Reykjanesbrautar og vinnu tengdri þeirri malbikun.
Um er að ræða beinar yfirlagnir á eldri slitlög gatna og yfirlagnir á áður fræstar götur.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 11:00 þann 12. apríl 2024.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 29. apríl 2024.