Home Fréttir Í fréttum 11.04.2024 HEF veitur. Langitangi – Fráveita

11.04.2024 HEF veitur. Langitangi – Fráveita

132
0
Útrás Langitangi - Fráveita.

HEF veitur óska eftir tilboðum í verkið Langitangi – Fráveita.
Verkið felst í lagningu dælulagnar fyrir fráveitu úr Vogalandi austur fyrir Langatanga á Djúpavogi. Einnig uppsetning á dælubrunni, hreinsistöð og útrás í sjó.

<>

Helstu magntölur eru:

Skurðgröftur, söndun og fylling 1100 m
Samsuða og lagning fráveitulagna 840 m
Samsuða og lagning útrásar í sjó 165 m
Vegslóði 400 m

Útboðsgögnin verða afhent rafrænt.  Óskir um afhendingu útboðsgagna berist til Nigar Khaligova, nigar@hef.is, frá og með föstudeginum 22. mars. 2024.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu HEF veitna eigi síðar en fimmtudaginn 11. apríl fyrir kl. 13:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.