Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu á Vesturlandi 2024, malarslitlag.
Um er að ræða vinnslu á malarslitlagsefni í fjórum námum á Vesturlandi. Tvær námur eru í Dalabyggð og tvær í Borgarbyggð.
Helstu magntölur:
- – Náma 1 0/16 7.600 m3
- – Náma 2 0/16 4.000 m3
- – Náma 3 0/16 4.000 m3
- – Náma 4 0/16 4.000 m3
Verki skal að fullu lokið 15. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 26. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. apríl 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign