Home Fréttir Í fréttum Fer fyrir 60 milljarða í­búða­kaupum ríkisins í Grinda­vík

Fer fyrir 60 milljarða í­búða­kaupum ríkisins í Grinda­vík

94
0
Örn Viðar Skúlason. Ljósmynd: Eyþór Árnason

Örn Viðar Skúlason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu.

<>

Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf., sem ríkið hefur falið að sjá um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík fyrir sína hönd, hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Örn Viðar hefur undanfarin ár starfað sem fjárfestingarstjóri hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins ásamt því að sitja í stjórnum fjölmargra sprotafyrirtækja. Viðskiptablaðið birti ítarlegt viðtal við hann síðasta sumar út af fjárfestingarátaki Nýsköpunarsjóðs.

Örn Viðar starfaði áður við eign rekstur, sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar og fjárfestinga hjá SPRON, sem framkvæmdastjóri Iceland Seafood og framkvæmdastjóri markaðssviðs og aðstoðarforstjóri SÍF samstæðunnar. Hann lauk meistaraprófi í hagverkfræði frá Tækniháskólanum í Berlín og meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.

„Það er ánægjulegt að fá öflugan og reyndan stjórnanda til að leiða starfsemi félagsins. Ég er þakklátur fyrrum vinnuveitanda Arnar Viðars fyrir að hafa skapað svigrúm til þess að hann geti hafi störf sem fyrst enda brýnt að verkefnin og úrlausnarefnin fram undan séu leyst eins hratt og auðið er,“ segir Óskar Jósefsson stjórnarformaður Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf.

Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins segir að fyrir liggi fjölmargar umsóknir um að Fasteignafélagið Þórkatla ehf. kaupi íbúðarhúsnæði í Grindavík. Lögð sé sérstök áhersla á að hraða uppbyggingu félagsins til þess að koma framkvæmd kaupanna í ferli.

Ásamt Óskari Jósefssyni sitja Guðrún Þorleifsdóttir og Hermann Hermannsson í stjórn Þórkötlu.

Heimild: Vb.is