Orka náttúrunnar óskar eftir tilboðum í verkefnið: ONVK-2024-04 Borgarnes – Hleðslugarður Jarðvinna
Orka náttúrunnar ráðgerir að setja upp hleðsluinnviði fyrir rafbíla við Digranesgötu 4C, Borgarnesi.
Svæðið verður upplýst og settar verða upp sjö (7) hleðslustöðvar auk annars búnaðar í samræmi við verklýsingu.
Helstu verkþættir eru jarðvinna, fyllingar, skurðgröftur, frágangur undirstaða, útlagning strengja, malbikun, hellulögn og annar frágangur.
Útboðsgögn afhent: | 18.03.2024 kl. 13:00 |
Skilafrestur | 11.04.2024 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 11.04.2024 kl. 14:00 |
Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum.