Home Fréttir Í fréttum 09.04.2024 Hlemmur og nágrenni 4. áfangi. Rauðarárstígur-Laugavegur – gatnagerð, yfirborðsfrágangur og lagnir

09.04.2024 Hlemmur og nágrenni 4. áfangi. Rauðarárstígur-Laugavegur – gatnagerð, yfirborðsfrágangur og lagnir

154
0
Mynd: RÚV – Ragnar Visage

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hlemmur og nágrenni 4. áfangi. Rauðarárstígur-Laugavegur – gatnagerð, yfirborðsfrágangur og lagnir, útboð nr. 15972

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Framkvæmdin felur í endurnýjun götuhluta Laugavegs og Rauðarárstígs umhverfis Hlemm í samræmi við framkvæmdamörk á yfirlitsteikningu. Núverandi fráveitulögn verður endurnýjuð með tvöföldu kerfi regnvatns- og skolps. Fyrirliggjandi heimæðar og niðurföll verða tengd nýja kerfinu auk nýrra svelgja í regnbeðum. Hluti hitaveitulagna í götustæði verða endurnýjaðar sem og vatnsveitulagnir.

Samfara endurnýjun lagna verður götukassi endurnýjaður að fullu með fullnaðarfrágangi undirbyggingar í samræmi við snið,  gróðurbeðum blágrænna lausna, nýrri hellulögn í gang- og götustæði ásamt nýju snjóbræðslukerfi undir hellulögn. Gengið verður að fullu frá fæðisstrengjum rafmagns í jörðu og verður einnig götulýsing endurnýjuð.

Tímabundinn yfirborðsfrágangur verður á svæði við Hverfisgötu þar til framkvæmdir við Borgarlínu hefjast þar. Samræma þarf hönnun þessa svæðis við það verkefni þegar hönnun þess liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að svæðið verði nýtt sem kynningaraðstaða fyrir Hlemm verkefnið og að svæðið verði hellulagt og malbikað án snjóbræðslu.

Helstu magntölur verksins eru:

  • Sögun malbiks 50 m
  • Upprif hellna 1.150 m2
  • Upprif malbiks 1.660 m2
  • Upprif á kantsteini 205 m
  • Götur- og stígar – Uppgröftur 1.200 m3
  • Götur- og stígar – Malarfylling 800 m3
  • Púkkmulningur 2.500 m2
  • Snjóbærðsluslöngur 5.700 m
  • Malbik 150 m2
  • Kantsteinn 70 m
  • Hellur 2.450 m2
  • Lagnir- Uppgröftur 3.960 m3
  • Lagnir- Fylling 3.285 m3
  • Lagnir – Losun klappar 1.300 m3
  • Fráveitulagnir 539 m
  • Niðurföll 6 stk
  • Kaldavatnslagnir 118 m
  • Hitaveitulagnir 114 m
  • Jarðstrengir   550 m

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 19. mars 2024.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 9. apríl 2024.