Home Fréttir Í fréttum Mikið er um að vera á Akureyrarflugvelli

Mikið er um að vera á Akureyrarflugvelli

62
0
Mynd: Akureyrarflugvöllur

Mikið er um að vera á Akureyrarflugvelli þessa dagana og framkvæmdir við flugstöðina eru í fullum gangi.

<>

Akureyrarflugvöllur biður  flugfarþega að hafa þolimæði á meðan á þessum framkvæmdum stendur

Nýja viðbyggingin er notuð fyrir komur í millilandaflugi. Viðbyggingin er einnig notuð fyrir komur í innanlandsflugi nema að millilandaflug sé í gangi.

Ef millilandaflug er þá koma farþegar í innanlandsflugi inn í gengum bráðabirgða sal við suðurenda flugstöðvarinnar (gámaeiningar).

Öll innritun er enn á sama stað.
Í lok júní mun nýr innritunarsalur verða tekinn í notkun í miðju flugstöðvarinnar, þ.e. þar sem gamli komusalurinn var. Þá mun aðstaðan verða miklu betri fyrir bæði innanlands- og millilandafarþega.

Í lok ágúst mun svo nýr komusalur fyrir innanlandsflug verða klár og þá lýkur framkvæmdum við flugstöðina.

Núna eru einnig bílaleigurnar með bráðabirgðaaðstöðu í gámum á suðurhluta bílastæðisins.

Heimild: Facebooksíða Akureyrarflugvallar