Home Fréttir Í fréttum Biðin eftir jarð­göngum óásættanleg

Biðin eftir jarð­göngum óásættanleg

72
0
Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir mikilvægt fyrir öryggi íbúa á svæðinu að jarðgöngin verði að veruleika fyrr en til stendur. VÍSIR/EINAR

Bæjarstjóri Ísafjarðar segir óásættanlegt að biðin eftir jarðgöngum á milli Súðavíkur og bæjarins verði líklega um tuttugu ár eins og staðan er nú. Ítrekað hafi þurft að loka veginum um Súðavíkurhlíð í vetur vegna snjóflóða og ótrúlegt sé að ekki hafi orðið stórslys.

<>

Vegurinn sem liggur frá Ísafirði til Súðavíkur liggur um tvær hlíðar, Kirkjubólshlíð og Súðavíkurhlíð og falla snjóflóð reglulega á veginn.

„Þetta eru eitthvað á milli þrjátíu og fjörutíu snjóflóð á vetri sem að fara yfir veginn hérna á milli þessara tveggja þéttbýlisstaða og það er svona með því allra mesta sem að er á Íslandi. Þetta er sá vegur sem að fær á sig flest snjóflóð af svona vegum sem eru með einhverja alvöru umferð og eru vegir á milli þéttbýlisstaða,“ segir Harpa Grímsdóttir deildarstjóri ofanflóða á Veðurstofu Íslands.

Tíðar lokanir í vetur vegna snjóflóða og snjóflóðahættu
„Það hafa verið miklar lokanir og fólk hefur verið lokað inni sem er hreint ekki gott. Þetta er náttúrulega bara stórhættuleg hlíð og fólk er þarna í hættu að keyra þarna.

Það er mikið eftirlit með hlíðinni þannig að henni er mjög oft lokað og þetta hefur auðvitað áhrif á allt líf okkar. Þá sérstaklega Súðvíkinga sem sækja auðvitað mikla þjónustu til okkar. Svo er þetta aðal samgönguleið okkar til annarra landshluta,“ segir Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.

Arna Lára segir biðina eftir göngum óásættanlega.
VÍSIR/EINA

Vestfirðingar hafa lengi barist fyrir því að fá jarðgöng milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna hættunnar sem fylgir því að aka veginn þarna á milli. Göngin sem hafa verið nefnd Álftafjarðargöng eru komin á jarðgangaáætlun.

„Við erum þar númer fimm í röðinni af hérna tíu jarðgangakostalista og við hefðum viljað komast ofar af því að hér er bara fólk í hættu. Þetta er bara öryggismál og það er í raun alveg ótrúlegt að hér hafi ekki orðið stórslys,“ segir hún.

Þá segir Arna að ef ekkert breytist sé langt í að göngin verði að veruleika.

„Miðað við áætlunina þáer þetta eftir einhver tuttugu ár eða eitthvað og þaðer náttúrulega óásættanlegt.“

Heimild: Visir.is