Home Fréttir Í fréttum Frumvarp um uppkaup íbúðarhúsnæðis samþykkt

Frumvarp um uppkaup íbúðarhúsnæðis samþykkt

29
0
Málin voru samþykkt laust eftir miðnætti. mbl.is/Eyþór

Frum­varp um tíma­bund­inn rekstr­arstuðning vegna nátt­úru­ham­fara í Grinda­vík­ur­bæ og frum­varp um kaup á íbúðar­hús­næði í Grinda­vík voru í kvöld samþykkt á Alþingi.

<>

All­ir viðstadd­ir þing­menn greiddu at­kvæði með mál­un­um.

Nokkr­ar breyt­ing­ar voru gerðar á frum­varp­inu um upp­kaup á íbúðar­hús­næði. Verður Grind­vík­ing­um til að mynda gef­inn frest­ur til ára­móta til að ákveða hvort þeir vilji selja eign sína.

Samþykkt eft­ir miðnætti

Dag­skrá þings­ins dróst á lang­inn og voru frum­vörp­in ekki samþykkt fyrr en níu mín­út­um eft­ir miðnætti.

Þurfti að fresta umræðu um frum­varp dóms­málaráðherra, um breyt­ing­ar á út­lend­inga­lög­um, sem var á dag­skrá þings­ins í gær.

Heimild: Mbl.is