Home Fréttir Í fréttum 22.03.2024 Bygging stúku og félagsaðstöðu á íþróttasvæði KA

22.03.2024 Bygging stúku og félagsaðstöðu á íþróttasvæði KA

173
0

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í byggingu stúku og félagsaðstöðu á íþróttasvæði KA. Verktíminn er í það heila allt að fjögur ár.

<>

Jarðvegsskiptum á framkvæmdasvæðinu er lokið og reiknað er með því að framkvæmdir geti hafist nú í vor. Um er að ræða annars vegar félagsaðstöðu á tveimur hæðum sem reist verði úr forsteyptum einingum og hins vegar hefðbundna staðsteypta stúkubyggingu á þremur hæðum með stálgrindar þaki.

Birt flatarmál mannvirkjanna er 2.722 m2

Verkið er jafnframt boðið út á evrópska efnahagssvæðinu.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með 21. febrúar 2024

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 22. mars 2024 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.