Home Fréttir Í fréttum Einn dregið sig úr út­boðinu vegna Ölfus­ár­brúar og fleiri að í­huga það

Einn dregið sig úr út­boðinu vegna Ölfus­ár­brúar og fleiri að í­huga það

170
0
Viðmælendur fréttastofu segja tilhögun útboðsins óneitanlega munu hafa áhrif á kostnað framkvæmdarinnar.

Að minnsta kosti einn aðili af fimm hefur dregið sig formlega úr tilboðsferlinu vegna byggingar Ölfusárbrúar og samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis eru fleiri að íhuga að gera slíkt hið sama.

<>

Fréttastofa hefur rætt við nokkra einstaklinga sem tengjast hópunum fimm sem hugðust gera tilboð í framkvæmdina en enginn þeirra vill koma fram undir nafni. Þá fengust þau svör bæði hjá Vegagerðinni og Samtökum iðnaðarins að þau myndu ekki tjá sig um málið fyrr en tilboðin hefðu verið opnuð.

Úboðsgögn vegna hönnunar og smíði Ölfusárbrúar voru send út í nóvember en fimm fyrirtæki sótt um að fá að taka þátt í útboðinu. Samkvæmt heimildum Vísis voru gerðar ákveðnar kröfur um reynslu í útboðsauglýsingunni, sem gerðu það að verkum að einsýnt var að erlendir aðilar þyrftu að koma að málum.

Eftirfarandi fyrirtæki sóttu um þátttöku en í flestum, ef ekki öllum, tilvikum um að ræða samstarf innlendra og erlendra aðila:

  • Hochtief Infrastructure GmbH, Essen, Þýskalandi
  • IKI Infrastructure Systems Co., Ltd, Tokyo, Japan
  • Ístak hf. – Per Aarsleff A/S – Freyssinet Int., fyrir hönd óstofnaðs félags, Reykjavík
  • Puentes y Calzada Infraestructuras, S.L.U., Spáni
  • ÞG verktakar ehf., Reykjavík

Staðlar og fjármögnun flækja málin

Ástæður þess að einn aðili hefur þegar dregið sig úr útboðinu og fleiri eru að skoða að gera það er sagðar margþættar en ekki síst sú staðreynd að ekki er stuðst við alþjóðlegan staðal, til dæmis FIDIC, hvað varðar útboðs- og samningsskilmála.

Þetta virðist hafa vakið efasemdir erlendu aðilanna um þátttöku en þá segja heimildarmenn Vísis einnig um að ræða óánægju er varðar fjármögnun.

Baldur Sigurðsson gerði samanburð á íslenska staðlinum ÍST 30 og FIDIC í meistararitgerð sinni við Háskóla Íslands árið 2014. Sagði hann ljóst að skilmálar FIDIC væru mun ítarlegri en ÍST 30.

Þá lagði Baldur könnun fyrir verkkaupa, verktaka og ráðgjafa, þar sem meðal annars kom fram að mönnum þótti ÍST 30 henta betur fyrir minni verk en FIDIC fyrir stærri og flóknari verk.

Fjórir af fimm ráðgjöfum sögðust telja að FIDIC hentuðu betur en ÍST 30, ekki síst við stærri framkvæmdir og framkvæmdir þar sem erlendir aðilar myndu mögulega koma að málum.

Heimild: Visir.is