Home Fréttir Í fréttum Bjarkarlundur 2 á Akureyri – Sala byggingarréttar

Bjarkarlundur 2 á Akureyri – Sala byggingarréttar

63
0

Akureyrarbær hefur samþykkt að óska eftir tilboðum í byggingarrétt einbýlishúsalóðarinnar Bjarkarlundur 2 í Lundahverfi.

<>

Lóðin Bjarkarlundur 2 er skráð 837 m² að stærð og samkvæmt skilmálum deiliskipulagsins er heimilt að byggja á lóðinni allt að 293 m² einbýlishús á einni hæð. Mesta hæð er 5 m yfir gólfkóta og þak má vera á bilinu 0 – 22°. Meðalvegghæð norðurhliðar má mest vera 3,6 m.

Tilboðum í lóðir skal skila rafrænt hér í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 12 miðvikudaginn 13. mars 2024 og verða tilboð opnuð í Ráðhúsinu kl. 14 sama dag í viðurvist þeirra umsækjenda sem þess óska. Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjenda.

Hér má nálgast útboðsgögn og í framhaldinu skila inn tilboði.

Hér má nálgast leiðbeiningar um hvernig skila megi inn rafrænu tilboði/umsókn.

Heimild: Akureyrarbær