Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Unnið að vegstæði Arnarnesvegar

Unnið að vegstæði Arnarnesvegar

110
0
Arnarnesvegur. Yfirlitsmynd yfir framkvæmdasvæðið.

Framkvæmdir við þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, eru komnar á fullt skrið eftir jólafrí. Vinnu við sprengingar vegna breikkunar Breiðholtsbrautar er lokið.

<>

Nú er unnið við sprengingar í vegstæði Arnarnesvegar. Byrjað var til móts við Vatnsendaveg og er unnið til suðurs í áttina að Rjúpnavegi. Grjótið, sem sprengt var við Breiðholtsbraut, er flutt og notað í fyllingu við nýja brú sem kemur Elliðaárdalsmegin yfir Breiðholtsbraut.

Þá er unnið við uppsteypu nyrðri landstöpuls brúarinnar og vinna við undirstöður syðri  landstöpulsins er hafin. Einnig er unnið við nýja stofnæð hitaveitu sem lögð verður norðan Breiðholtsbrautar frá Suðurfelli til austurs að Elliðaám.

Myndband af fyrirhugðum Arnarnesvegi:

Heimil: Vegagerdin.is