Home Fréttir Í fréttum Hafa úthlutað 4,7 milljörðum fyrir 400 nýjar íbúðir

Hafa úthlutað 4,7 milljörðum fyrir 400 nýjar íbúðir

132
0
Stærstur hluti íbúðanna kemur til með að vera á höfuðborgarsvæðinu. Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Úthlutun stofnframlaga fyrir árið 2023 nam rúmlega 4,7 milljörðum króna og verður notaður til að byggja 400 íbúðir.

<>

Samkvæmt tilkynningu frá HMS nam úthlutun stofnframlaga fyrir árið 2023 rúmlega 4,7 milljörðum króna og mun nýtast til uppbyggingar samtals 400 nýrra íbúða fyrir tekju- og eignaminni heimili í 18 sveitarfélögum.

Stærstur hluti íbúðanna kemur til með að vera á höfuðborgarsvæðinu en úthlutað var einnig til íbúða í öllum landshlutanum, þá sérstaklega í Reykjanesbæ, á Akureyri og í Fjarðarbyggð.

Meðal verkefnanna er 21 ný íbúð fyrir fatlað fólk sem verða til á næstu misserum.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra kynnti uppbyggingu hagkvæmra íbúða fyrir tekju- og eignaminni á fundi hjá HMS um mitt síðasta ár. Ráðherra upplýsti þar að samtals væri stefnt að því að byggja 2.800 íbúðir fyrir þennan hóp á árunum 2023-2025 í stað 1.250 íbúða sem áður var áætlað.

Stofnframlag ríkisins er 18% af stofnkostnaði íbúðanna og framlag sveitarfélags er 12%. Ríki er heimilt er að veita allt að 4% viðbótarframlag vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, íbúðarhúsnæðis ætlað námsmönnum eða öryrkjum.

Frá því að reglur um stofnframlag tóku gildi á seinni hluta árs 2016 hefur HMS úthlutað stofnframlögum til byggingar eða kaupa á samtals 3.486 íbúðum um allt land.

Heildarfjárhæð stofnframlaga ríkisins eru um 24 milljarðar króna og heildarfjárfesting í verkefnunum um 125 milljarðar.

Heimild: Vb.is