Home Fréttir Í fréttum Ellefu metra há renni­braut á Sauð­ár­króki

Ellefu metra há renni­braut á Sauð­ár­króki

78
0
Sigfús Ingi (t.v.) og Ingvar Páll, sem eru mjög spenntir eins og aðrir íbúar í Skagafirði fyrir nýja sundlaugarsvæðinu. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Mikil spenna er á meðal íbúa í Skagafirði en nú styttist óðum í að nýtt afþreyingarsvæði við sundlaugina á Sauðárkróki opni þar sem nokkrar rennibrautir verða, meðal annars einn elleftu metra há.

<>

Núverandi sundlaug er komin til ára sinna en hún er í grunninn 70 ára gömul. Sundkennsla fer fram í útilaug og svo eru pottar og þess háttar sem tilheyrir sundlaugum dagsins í dag. Nú er hins vegar stórir hlutir að gerast því það er verið að byggja nýtt og glæsilegt mannvirki við hlið núverandi laugar.

Nýja svæðið er við hlið núverandi útilaugar.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

„Þetta er nú aðallega afþreyingarsvæði fyrir börn og fullorðna, svona huggulegarheitasvæði eins og maður segir. Hér á til dæmis að rísa 11 metra hár rennibrautaturn og við verðum með einhverjar þrjár til fjórar rennibrautir, kennslulaug, nuddpotta og kaldan pott, viðbót við þá potta, sem við erum með fyrir og laugakar, þannig að þetta er ansi mikil viðbót,” segir Ingvar Páll Ingvarsson verkefnisstjóri á veitu og framkvæmdasviði hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.

„Ég hef fulla trúa á því að þetta verður alveg stórglæsilegt. Þegar þessi turn verður komin verður þetta mikið kennileiti,” bætir Ingvar Páll við.

Nýtt og glæsilegt sundlaugarmannvirki er nú í byggingu á Sauðárkróki sem lítur svona út á teikningu.
AÐSEND

Og sveitarstjórinn er mjög spenntur eins og allir íbúar í Skagafirði fyrir nýja laugarsvæðinu.

„Við erum búin að bíða lengi eftir þessu og eins og þú sérð, þetta er bara glæsileg framkvæmd, sem við hlökkum til að taka í notkun,” segir Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri í Skagafirði.

En kostnaðurinn, hver verður hann?

„Já, þetta kostar talsvert. Ætli við gætum ekki verið að tala um allt í allt frá upphafi til enda, þar sem við erum að taka gömlu laugina og gömlu bygginguna algjörlega í gegn, þetta geta verið svona fjórtán hundruð milljónir,” segir Sigfús Ingi.

Sigfús Ingi segist vona að íbúar og gestir svæðisins þurfi ekki að bíða mjög lengi í viðbót eftir því að nýja sundlaugasvæðið verði opnað þó hann vilji ekki nefna neinn mánuð né dagsetningu í því sambandi.

Heimild: Visir.is