Home Fréttir Í fréttum Sex milljarða Grindavíkurgarðar miklu stærri en í Svarts­engi

Sex milljarða Grindavíkurgarðar miklu stærri en í Svarts­engi

177
0
Heila línan táknar fyrsta áfanga varnargarðsins um Grindavík, sem byrjað verður á eftir helgi. Þegar yfir lýkur mun garðurinn ná nær alveg umhverfis bæinn en hvar nákvæmlega hann mun liggja hefur ekki verið gefið út. Brotalínurnar gefa þannig aðeins hugmynd um umfangið, eru ekki lýsandi fyrir varnargarðana eins og þeir verða. VÍSIR/ARNAR/SARA

Auknar líkur eru á eldgosi norðan Grindavíkur og hætta er talin á hraunflæði inn í bæinn. Byrjað verður að reisa gríðarstóra varnargarða við Grindavík strax eftir helgi. Bæjarstjóri telur að uppbygging garðanna fái Grindvíkinga til að flytja heim.

<>

Fyrsti hluti varnargarðsins mun liggja nokkurn veginn eins og myndin hér efst í fréttinni sýnir. Hann á að verja Grindavík norðanverða, beggja megin Grindavíkurvegar. Þegar yfir lýkur munu varnargarðar þó ná næstum alveg utan um bæinn. Kostnaður við fyrsta áfanga verður um hálfur milljarður króna en heildarkostnaður upp undir sex milljarðar.

„Hann verður gríðarlega stór, helmingi stærri heldur en varnargarðurinn sem nú þegar hefur verið byggður í Svartsengi. Við ætlum að hefja strax undirbúning í dag og svo framkvæmdir í framhaldinu,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra.

Garðarnir skili fólki heim

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur telur garðinn, sem verður þó ekki tilbúinn fyrr en eftir nokkrar vikur eða mánuði, munu eiga stóran þátt í því hvort Grindvíkingar snúi heim.

„Já, ég gæti vel trúað því. Það er ekki tímabært endilega að flytja heim vegna þess að garðurinn er ekki kominn núna. En ég hugsa að það hugsi sér margir til heimkomunnar, vitandi af garðinum, og sérstaklega þegar hann verður kominn. Það mun auka öryggi okkar til muna,“ segir Fannar.

Landris í Svartsengi hefur nú náð sambærilegum hæðum og rétt fyrir eldgosið 18. desember, samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar – sem gaf út uppfært hættumatskort fyrir svæðið í dag.

Veðurstofan telur auknar líkur á eldgosi norðan Grindavíkur. Hættustigi á svæðinu verður þó haldið óbreyttu næstu daga en í dag var formlega bætt við hættu á hraunrennsli og gasmengun innan bæjarins. Þetta undirstrikar brýna þörf á varnargörðunum, að mati bæjarstjórans.

„Hann skiptir miklu máli fyrir íbúana, og búsetuna í Grindavík og atvinnulífið líka. Því það er ekki langt í upptökin eins og þau birtust okkur núna þann 18. desember og ef það kemur gos að nýju þá gæti hraun komið upp og runnið til suðurs í átt að Grindavík.“

Heimild: Mbl.is