Home Fréttir Í fréttum 26.02.2023 Hof menningarhús, nýtt hljóðkerfi fyrir tónleikasalinn Hamraborg

26.02.2023 Hof menningarhús, nýtt hljóðkerfi fyrir tónleikasalinn Hamraborg

47
0
Mynd: Akureyri.is

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í verkið Hof menningarhús, hljóðkerfi.

<>

Verkið felur í sér nýtt hljóðkerfi fyrir tónleikasalinn Hamraborg í menningarhúsinu Hofi.

Hamraborg er 509 manna fjölnotasalur í Menningarhúsinu Hofi, Strandgötu 12, 600 Akureyri.

Salurinn er notaður fyrir ýmsa viðburði, ráðstefnur, leiksýningar og tónleika, bæði klassíska sem og uppmagnaða tónleika, allt frá rokki til kórtónleika.

Framkvæmdatíminn er frá 1. júní til 1. ágúst 2024.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á útboðsvef Akureyrarbæjar, frá og með 20. desember 2023.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!

Útboðsgögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugáttinni eftir að búið er að sækja um gögnin og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 11.00 mánudaginn 26. febrúar 2024.

Heimild: Akureyri.is