Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu, breikkun og klæðingu Þingskálavegar (268) frá Heiði á Rangárvöllum að Bolholti. Heildarlengd útboðskaflans er um 7,5 km.
Verkið felst að stærstum hluta til í breikkun núverandi vegar sem er að jafnaði 5-6 m breiður, upp í 6,5 m breiðan veg.
Vinna skal og leggja til burðarlag (0/22 mm) og styrktarlag (0/63 mm) og leggja klæðingu á allan vegkaflann með tilheyrandi lagfæringum á vegfláum til að auka umferðaröryggi.
Færa þarf veglínu að hluta á um 300 m kafla um Heiðarlæk til vesturs.
Helstu magntölur eru:
- – Skeringar 5.500 m3
- – Bergskeringar í námu 18.500 m3
- – Fyllingar 25.000 m3
- – Styrktarlag 0/63 10.400 m3
- – Burðarlag 0/22 8.200 m3
- – Tvöföld klæðing 47.900 m2
- – Frágangur fláa 62.900 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 12. desember 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. janúar 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign