Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun tilboða vegna hönnunar á nýrri legudeild sjúkrahússins á Akureyri

Opnun tilboða vegna hönnunar á nýrri legudeild sjúkrahússins á Akureyri

281
0

Opnuð hafa verið tilboð vegna þátttöku í hönnun á nýrri legudeild sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Verkefnið felur í sér hönnun á 9.200 m2 nýbyggingu ásamt lóðarhönnun og aðkomu að deiliskipulagsbreytingu.

<>

Gert er ráð fyrir að nýbygging verði staðsett sunnan við núverandi byggingar á lóð SAk og tengd núverandi húsnæði.

Á þriðja tug aðila, sem mynda sex hópa, sendu inn þátttökutilkynningu. Í framhaldinu verða fimm hópar valdir til þátttöku í útboðinu þegar forvalsnefnd hefur metið innsend gögn.

Ef niðurstaða lendir á jöfnu mun fulltrúi sýslumanns draga út þann hóp sem ekki fær boð um að taka þátt í útboðinu.

  • Arkþing Nordic
  1. Exa nordic
  2. Lota ehf.
  3. Myrra hljóðstofa
  4. Líf byggingar
  • EFLA
  1. ASK arkitektar
  2. Ratio arkitekter
  • Mannvit
  1. Arkís arkitektar
  • Verkís
  1. TBL arkitektar
  2. JCA Ltd
  3. Brekke & Strand
  • VSÓ ráðgjöf
  1. Hornsteinar arkitektar
  2. Brunahönnun
  3. Brekke & Strand
  4. Niras
  • Teiknistofan Tröð
  1. Teknik verkfræðistofa
  2. TKM hönnun
  3. Örugg verkfræðistofa
  4. Hljóðvist

 

Heimild: NLSH.is