Home Fréttir Í fréttum Fyllt upp í stórar holur í Grindavík

Fyllt upp í stórar holur í Grindavík

155
0
Risastórar holur hafa myndast eftir jarðhræringarnar Mynd: Vf.is/Jón Reynisson

Framkvæmdir eru hafnar í Grindavík við að fylla upp í þær sprungur og holur sem hafa myndast í jarðhræringunum undanfarna daga.

<>
Mynd: Vf.is/Jón Reynisson

Vörubílafyrirtækið Jón & Margeir er meðal annarra í þessu verkefni. Jón Reynisson er starfsmaður fyrirtækisins og tók þessar myndir.

„Það er ekki nokkur leið að átta sig á hvað þarf að sturta af mörgum vörubílum til að fylla upp í þessa holu, við sjáum ekki til botns í henni. Við sáum þessa holu, skoðuðum betur og þá kom þetta í ljós.

Mynd: Vf.is/Jón Reynisson

Það er ljóst að þetta getur verið stórhættulegt, við vitum ekkert hvað er undir grasinu sem dúar, getur verið 50 sentimetra hola undir eða tugir metra.

Mynd: Vf.is/Jón Reynisson

Það verður að skoða þessi mál mjög vel áður en fólki verður hleypt inn í bæinn til að búa,“ sagði Jón.

Heimild: Vf.is