
Tómas Hilmar Ragnarz, forstjóri Regus á Íslandi, segist aldrei í sjö ára sögu fyrirtækisins hafa séð önnur eins viðbrögð og nýtt skrifstofusetur Regus á Kirkjusandi hafi fengið.
„Við erum 39% uppseld nú þegar og samt opnum við ekki fyrr en í febrúar á næsta ári,“ segir Tómas.
Hönnun húsnæðisins er sér á báti að sögn Tómasar. „Þarna erum við líklega að búa til eitt glæsilegasta skrifstofuhúsnæði á landinu.
Gæðin eru fyrsta flokks og umhverfislega er húsnæðið einnig á stigi sem ekki hefur sést áður,“ bætir forstjórinn við.
Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í gær.
Heimild: Mbl.is