Home Fréttir Í fréttum 15.01.2024 LED lampar fyrir götu- og stígalýsingu

15.01.2024 LED lampar fyrir götu- og stígalýsingu

119
0
Mynd: Byggingar.is

Kópavogsbær, kt.700169-3759, óskar eftir tilboðum í í LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu.

<>

Gerðar eru kröfur til þess að bjóðandi bjóði lampa sem komi vel út í lífferilskostnaðargreiningu, uppfylli ljóstæknilegar kröfur, formkröfur og lýsingarútreikninga.

Lampar eru metnir út frá ofangreindum atriðum og þeim gefin stig fyrir lífsferilskostnað og ábyrgðartíma og umhverfisstjórnunarkerfi.

Bjóðandi skal geta afhent lampa samkvæmt magntöluskrá og afhendingaráætlun kaupanda.

Samið verður við einn bjóðanda til þriggja ára.

Útboðsgögn verða aðgengileg í útboðskerfinu TendSign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt inn í TendSign mánudaginn 15. janúar 2024, fyrir kl. 13:00.

Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.

Sjá frekar.