Home Fréttir Í fréttum Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

Býður Ís­lendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarð­göng Evrópu

78
0
Troy Helming er stofnandi og forstjóri Earthgrid í Kaliforníu. SIGURJÓN ÓLASON

Íslensk stjórnvöld eiga í viðræðum við bandarískt frumkvöðlafyrirtæki á sviði kyndilborunar um að bora jarðgöng mun ódýrar og hraðar en áður hefur þekkst. Fyrirtækið býðst til að byrja á því að bora lagnagöng til Vestmannaeyja á næsta ári á eigin ábyrgð.

<>

Við sögðum í sumar að þetta hljómaði eins og í gömlu ævintýri að eldspúandi dreki boraði göng í gegnum íslensk fjöll. Frumkvöðullinn Troy Helming notar myndlíkingu úr framtíðarbíómynd í viðtali við Stöð 2:

„Ef við ímyndum okkur litla dráttarvél með geislasverð eins og í Star Wars að framan og Mandalorian Jetpack sem blæs út möl og sandi að aftan.”

Borvélmenni Earthgrid nýtir ofurheitan plasma-ljósboga við að mölva bergið án þess að snerta það.
EARTHGRID

Aðferðin að nota ofurheitan plasma-ljósboga er þekkt úr málmiðnaði en er sögð geta valdið byltingu í jarðgangagerð.

„Við getum verið allt að hundrað sinnum fljótari en við hefðbundna gangagerð og allt frá 20 til 90 prósent ódýrari en við hefðbundna gangagerð því það er aðallega bara rafmagnið,” segir Troy Helming, stofnandi og forstjóri Earthgrid í Kaliforníu.

Svo spenntir eru íslenskir ráðamenn fyrir tækninni að þeir undirrituðu viljayfirlýsingu við íslenskan umboðsmann Earthgrid, Björgmund Guðmundsson, í Vestmannaeyjum í júnílok.

Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í Vestmannaeyjum síðastliðið sumar. Frá vinstri: Björgmundur Örn Guðmundsson fulltrúi EarthGrid, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
STJÓRNARRÁÐIÐ

Forstjóri Earthgrid segir þrjár fyrstu borvélarnar verða tilbúnar á næsta ári og vonast til þess að Íslendingar ríði á vaðið í Evrópu með lagnagöngum til Eyja.

„Við vonum það. Ef við fáum samning á Íslandi getum við breytt einni vélinni svo hún gangi við 50 hertsa rafkerfið í Evrópu og á Íslandi.”

-Hvenær getið þið byrjað á Íslandi?

„Sennilega um þetta leyti á næsta ári. Með 2,5 metra breiðum göngum fyrir raflagnir, ljósleiðara, vatn.” Jafnvel fyrir póst- og pakkasendingar.

Troy Helming býðst til að kyndilbora 2,5 metra breið lagnagöng til Vestmannaeyja, sem gætu í framtíðinni þjónað sem flóttagöng fyrir 8-10 metra breið veggöng.
SIGURJÓN ÓLASON

Og slík göng gætu haft annað hlutverk.

„Þau væru líka flóttagöng fyrir stærri 8 til 10 metra breið veggöng í framtíðinni.”

Og forstjórinn býður að Earthgrid geri þetta á eigin ábyrgð.

„Við erum sjö ára sprotafyrirtæki, við erum mjög vel fjármögnuð svo við höfum boðist til að taka á okkur alla áhættuna sem þýðir að við þurfum enga peninga frá neinum fyrr en við ljúkum áföngum í verkefnunum.”

-En hvenær verður Earthgrid tilbúið að grafa veggöng?

„Ekki á næsta ári en hugsanlega um vorið eða sumarið árið þar á eftir.”

Fyrstu þrjár kyndiborvélar Earthgrid, með 2,5 metra þvermál, verða tilbúnar á næsta ári. Forstjórinn býður að ein þeirra byrji á Íslandi.
EARTHGRID

Aðferðin er sögð umhverfisvæn en þarf mikla raforku.

„Hún útheimtir mikla orku. Við brennum engu jarðefnaeldsneyti. Við notum raforku og loft.

Fyrir göng sem eru 2,5 metrar í þvermál þurfum við fjögur til átta megavött. Það er svipað og hleðslustöð með 30 til 40 Teslum. Það er álíka mikil orka.”

Til að bora veggöng segir hann að þyrfti áttfalt meiri raforku.

Troy hefur undanfarna daga fundað með íslenskum ráðamönnum, þeirra á meðal innviðaráðherra og umhverfisráðherra, og segir þá áhugasama um framhaldið.

„Við höfum þegar undirritað viljayfirlýsingu og nú erum við að tala um að taka næstu skref til að gera skilyrtan samning þar sem við tökum alla áhættuna,” segir Troy Helming, stofnandi og forstjóri Earthgrid í Kaliforníu.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Heimild: Visir.is