Home Fréttir Í fréttum Birkir Hrafn nýr fram­kvæmdar­stjóri Höfða

Birkir Hrafn nýr fram­kvæmdar­stjóri Höfða

108
0
Birkir Hrafn Jóakimsson. REYKJAVÍKURBORG

Birkir Hrafn Jóakimsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri Malbikunarstöðvarinnar Höfða. Hann hefur störf í desember næstkomandi.

<>

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Birkir Hrafn komi til Höfða frá Vegagerðinni.

„Þar hefur hann gegnt stöðu forstöðumanns stoðdeildar mannvirkjasviðs og borið ábyrgð á rannsóknum, útboðum og leiðbeiningum til starfsmanna og verktaka.

Birkir Hrafn starfaði áður hjá verkfræðistofunni Verkís. Hann er með M.Sc. próf í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands.“

Malbikunarstöðin Höfði hf. er í eigu Reykjarvíkurborgar og Aflvaka hf. Fyrirtækið var stofnað 1996 þegar að Malbikunarstöð Reykjavíkurborgar og Grjótnám Reykjavíkurborgar var sameinað.

Heimild: Visir.is