Home Fréttir Í fréttum Meta tjón á fasteignum í Grindavík

Meta tjón á fasteignum í Grindavík

102
0
Skemmd fasteign í Grindavík. Ljósmyndir/Kristinn Magnússon/Morgunblaðið

Náttúruhamfaratrygging Íslands er með tvo hópa matsmannateyma sem fara með eigendum í sín hús til að meta tjón í nokkrum eignum sem eru mikið skemmdar. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur haft samband við þessa íbúa.

<>
Ljósmyndir/Kristinn Magnússon/Morgunblaðið

Annað teymi á vegum Náttúruhamfaratryggingar hefur farið með HS Veitum að húsum þar sem heitavatnsnotkun hefur verið óeðlilega mikil undanfarið, með það fyrir augum að finna út úr því hvort um sé að ræða leka í eða við húsin.

Ljósmyndir/Kristinn Magnússon/Morgunblaðið

Ekki er farið inn í nein hús án þess að eigendur eða fulltrúar þeirra séu viðstaddir.

Heimild: Vf.is