Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur
Endurnýjun Neyðarlýsingarkerfis:
Verktaki skal taka niður og aftengja öll neyðarljós í núverandi neyðarlýsingakerfi.
Leggja til nýtt neyðarlýsingarkerfi í samræmi við kröfur þar um, auk þess að setja upp ný neyðarljós, og aðra kerfishluta, tengja, forrita og skila fullkláruðu neyðarlýsingakerfi til verkkaupa.
Verkinu er skipt upp í eftirfarandi verkáfanga:
Ár | Búnaður |
2016 | Fjöldi neyðarljósa 271, ásamt miðlægum búnaði og sendum. |
2017 | Fjöldi neyðarljósa 292, ásamt sendum. |
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með þriðjudeginum 08.03.2016 á vefsíðu Orkuveitunnar www.or.is/fjarmal/utbod
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðs og verklýsingu „ORIK-2016-02 Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur Endurnýjun Neyðarlýsingarkerfis“ útgefin í mars 2016“
Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur sef., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 29.03.2016 kl. 11:30.