Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
Reykjaæðar við Ártúnsholt Endurnýjun aðveituæða og göngustígs:
Endurnýja skal hitaveitulagnir og kaldavatnslögn og leggja göngustíg ásamt göngustígalýsingu. Þar að auki skal jarðvegsskipta leiksvæði við Sílakvísl.
Verkið felst í að grafa og fylla vegna hitaveitu- og kaldavatnslagna auk jarðstrengja fyrir göngustígalýsingu, fjarlægja gamlar hitaveitu- og kaldavatnslagnir, fjarlægja hitaveitustokka, leggja hitaveitu- og kaldavatnslagnir, leggja jarðstreng vegna stígalýsingar, malbika, leggja hellur, steypa gangstéttar, taka niður tré, runna og girðingar, jarðvegsskipta leiksvæði og ganga frá gróðursvæðum. Vinnusvæðið nær frá gatnamótum Höfðabakka og Strengs, í gegnum byggð á Ártúnsholtinu og endar milli Silunga- og Urriðakvíslar.
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðs og verklýsingu „VEV-2016-02 Reykjaæðar við Ártúnsholt. Endurnýjun aðveituæða og göngustígs“ útgefin í mars 2016“
Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 29.03.2016 kl. 11:00.