Home Fréttir Í fréttum 14.12.2023 Stjórn- og varnarbúnaður og SCADA kerfi fyrir Nýjan Landspítala

14.12.2023 Stjórn- og varnarbúnaður og SCADA kerfi fyrir Nýjan Landspítala

110
0

Nýr Landspítali ohf., kt. 500810-0410, Alaskareiturinn við Burknagötu, 121 Reykjavík, óskar eftir tilboðum í hönnun og uppsetningu á stjórn- og varnarbúnaði og SCADA kerfi fyrir rafdreifingu fyrir allar nýbyggingar NLSH við Hringbraut í Reykjavík.

<>

Stjórn og varnarbúnaðurinn og SCADA kerfið mun samanstanda af sérhæfðum vél- og hugbúnaði sem verður settur upp í nýbyggingum sjúkrahússins.

Kerfið skal veita skilvirka vernd, stjórnun og eftirlit með raforkukerfinu. Kerfið skal vera samþætt kerfi sem felur í sér samskipti, vernd, sjálfvirkni, nákvæman tíma, SCADA og verkfræði/stjórnunartæki.

Kerfið skal byggja á nýjustu tækni og stöðlum fyrir sjálfvirkni stafrænna tengivirkja, eins og IEC 61850.

Stjórn- og varnarbúnaðurinn og SCADA kerfið skal afhendast fullbúið með öllum fylgihlutum, búnaði, efni, raflögnum, öllum tilgreindum og nauðsynlegum vélbúnaði, hugbúnaði sem er forritaður til að tryggja vandræðalausan og öruggan rekstur.

Útboðsgögn afhent: 09.11.2023 kl. 00:00
Skilafrestur 14.12.2023 kl. 14:00
Opnun tilboða: 14.12.2023 kl. 14:15

Heimild: NLSH.is