Home Fréttir Í fréttum Vörubílar á ferð í alla nótt – Sækja efni í nýjan varnargarð

Vörubílar á ferð í alla nótt – Sækja efni í nýjan varnargarð

200
0
Mynd frá Reykjanesskaga.

Undirbúningur við byggingu varnargarði að orkuverinu í Svartsengi er kominn á fullt og greinir Ríkisútvarpið frá því að í alla nótt hafi efni verið flutt úr malarnámum á Reykjanesskaga að orkuverinu.

<>

Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi samþykkti þingheimur frumvarp sem heimilar byggingu þessara varnargarða en verkefnið verður fjármagnað með nýjum skatti sem leggst á heimili landsins næstu þrjú árin.

Í upplýsingavakt RÚV vegna atburðanna á Reykjanesskaga segir fréttakonan Alma Ómarsdóttir að mikið af bílum sé á ferð í átt að Svartsengi.

„Þeir hafa verið að keyra í meira en sex klukkustundir svo hægt sé að hefja framkvæmdir um leið og dómsmálaráðherra hefur gefið lögreglustjóranum á Suðurnesjum heimild til að hefja framkvæmdir,“ sagði Alma í fréttum RÚV klukkan sex í morgun.

Heimild: Dv.is