Vegagerðin býður hér með út smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 m plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 km. Brýrnar eru beggja vegna við Klettsháls.
Heildar magntölur fyrir vegagerðina:
- – Bergskering 27.700 m3
- – Fyllingar 49.900 m3
- – Útjöfnun gamals vegar 14.000 m2
- – Fláafleygar 15.700 m3
- – Ræsalögn 186 m
- – Styrktarlag flutningur og útlögn 10.000 m3
- – Burðarlag flutningur og útlögn 3.700 m3
- – Klæðing 33.960 m2
- – Vegrið 480 m
Heildar magntölur fyrir brúargerðina á báðar brýr:
- – Vegrið 188 m
- – Gröftur 1.600 m3
- – Stálstaurar, skurður 120 stk.
- – Mótafletir 2.132 m2
- – Steypustyrktarjárn 100 tonn
- – Spennt járnalögn 21 tonn
- – Steypa 1.180 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2025.