Vegagerðin býður hér með út lagfæringu og styrkingu á vegfláa við Festarfjall á Suðurstrandarvegi (427-04). Keyra skal efni utan á vegfláann að sunnanverðu á um 800 m kafla ásamt því að framlengja ræsi á kaflanum.
Helstu magntölur eru:
Fyllingar 14.600 m3
Frágangur fláa 16.000 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. febrúar 2024.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 2. október 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. október 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign