Home Fréttir Í fréttum 31.10.2023 Ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði 2023-2025

31.10.2023 Ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði 2023-2025

130
0
Mynd: STÖÐ 2/SKJÁSKOT

Vegagerðin býður hér með út ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði verturna 2023-2024 og 2024-2025.

<>

Um er að ræða eftirtalin svæði: Reykjanes, Höfuðborgarsvæðið, Vesturlandsvegur, Hvalfjarðarvegur og Þingvallavegur, Hellisheiði og Þrengslavegur.

Verkið felst í gæðaeftirliti með hreinsun á snjó og krapa af vegum, vegköntum, gatnamótum og öðrum þeim mannvirkjum sem tilheyra veginum svo og eftirliti með hálkuvörn á vegyfirborði, mælingum á ástandi vegyfirborðs og upplýsingagjöf til vaktstöðvar um færðarástand og veður.

Einnig felur verkið í sér ráðgjöf um nýtingu tækjaflota vetrarþjónustuverktaka.

Áætlaður akstur eftirlitsbifreiðar er 22.000 km og vinnutími fyrir hvort tímabilið 2.928 klst.

Gildistími samnings er til 31. mars 2025. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár, eitt ár í senn.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 27. september 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  31. október 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.