Home Fréttir Í fréttum Hlut­hafar Eikar heimila sam­runa­samning við Reiti

Hlut­hafar Eikar heimila sam­runa­samning við Reiti

40
0
Skrifstofa Eikar fasteignafélags í Sóltúni í Reykjavík. Mynd: EIK

Hluthafar Eikar fasteignafélags hafa samþykkt að stjórn félagsins sé heimilt að gera samrunasamning við Reiti fasteignafélag. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

<>

Þar kemur fram að hluthafar hafi samþykkt tillöguna með 83,88 prósenta atkvæða. Var málið það eina sem tekið var upp á fundi.

„Að öðru leyti en greinir sérstaklega í samþykki þessu skal stjórn félagsins heimilt að semja um efni samrunasamningsins sem og samrunaáætlunar og annarra samrunagagna samkvæmt lögum um hlutafélög sem mynda skulu órjúfanlegan hluta samrunasamningsins.“

Kemur fram í tilkynningunni að stjórn skuli eingöngu vera heimilt að undirrita samrunagögn á grundvelli samrunasamningsins ef fyrir liggur að yfirtökutilboð Regins.hf í félagið hafi ekki verið samþykkt af tilskildum meirihluta hluthafa Eikar fasteignafélags hf.

„Samþykki þetta víkur á engan hátt til hliðar skyldum félagsins til að leggja samrunann fyrir hluthafa til endanlegrar ákvörðunar í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög nr. 2/1995.“

Heimild: Visir.is