Home Fréttir Í fréttum 19.10.2023 Íþróttahús á Jaðarsbökkum – Innri frágangur og búnaður

19.10.2023 Íþróttahús á Jaðarsbökkum – Innri frágangur og búnaður

249
0
Nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum.

Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. óskar eftir tilboði í innri frágang og búnað fyrir nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum. Verkið er auglýst á EES svæðinu.

<>

Í þessu útboðsverki skal ljúka við allan innri frágang ásamt ýmsum föstum búnaði í kjallara og á efri hæðum. Verktaki fær aðgang að vinnusvæði í kjallara 1. janúar 2024 og öllu húsinu eigi síðar en 1. apríl 2024.

Mannvirkið er með heildar gólfflöt 5.300 m2.
Í haust er verið að ljúka við framkvæmdir við uppsteypu og allan ytri frágang með gluggum og hurðum. Á næsta ári verður lóðarfrágangur boðinn út sérstaklega og unninn samhliða innri frágangi.

Framkvæmdinni í kjallara skal skila 30. janúar 2025 og öllu verkinu 30. maí 2025.
Vettvangsskoðun er föstudaginn 22. september 2023 kl. 10:00.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá þriðjudeginum 12. september 2023 kl. 12:00 í gegnum útboðsvef á slóðinni https://akranes.ajoursystem.net.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 19. október 2023. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.

Útboðsgögn afhent: 12.09.2023 kl. 15:00
Skilafrestur 19.10.2023 kl. 11:00
Opnun tilboða: 19.10.2023 kl. 11:00