F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Umferðaröryggisaðgerðir 2023, útboð nr 15897
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í gerð ýmissa umferðaröryggisaðgerða á 13 mismunandi stöðum í Reykjavík.
Um er að ræða gerð hellulagðra upphækkanna, malbikaðra upphækkana og samblöndu
af hellulagðri og malbikaðri upphækkun af sænskri fyrirmynd, gerð stétta ásamt hellulögn
stefnu- og áherslueininga, uppsetning fallvarna, skiltun og yfirborðsmerkingar,
gróðursetningu runna og trjáa, niðursetningu nýrra niðurfalla auk uppsetningu á
ljósastaurum vegna gangbrautarlýsingar með tilheyrandi jarðvinnu, skurð- og
strenglögnum ásamt yfirborðsfrágangi.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 29. ágúst 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 13. september 2023.