Home Fréttir Í fréttum Bauhaus hagnast um 293 milljónir

Bauhaus hagnast um 293 milljónir

93
0
Ásgeir Bachmann er framkvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi. Ljósmynd: Aðsend mynd

Bauhaus á Íslandi hagnaðist um 293 milljónir króna í fyrra samanborið við 429 milljóna hagnað árið 2021 sem var besta rekstrarárið frá því að verslunin hér á landi árið 2012.

<>

Tekjur byggingavöruverslunarinnar stóðu nánast í stað og námu 4,5 milljörðum króna á tíunda starfsárinu. Í skýrslu stjórnar í nýbirtum ársreikningi segir afkoman í fyrra hafi einkennst af miklum áhrifum af alþjóðlegri verðbólguþróun sem hafði för með sér að framlegðin „var undir stöðugum ágangi“.

Eignir Bauhaus slhf., sem er í eigu þýsku samstæðunnar, voru bókfærðar á 2,3 milljarða króna í árslok 2022 og eigið fé var um 988 milljónir. Lambhagavegur fasteignafélag, sem er í eigu sömu aðila í gegnum eignarhaldsfélagið Anelytsparken Holding A/S, var með 1,3 milljarða í eigið fé en bókfærðar eignir námu um 4,5 milljörðum í árslok 2022.

Mynd: Vb.is

Heimild: Vb.is