
Umhverfisstofnun hefur óskað eftir frekari gögnum og skýringum vegna tillögu að breyttu deiliskipulagi Bláa lónsins.
Nánar tiltekið breytingu á deiliskipulagi heilsu- og ferðaþjónustu við Bláa lónið.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti hinn 27. júní síðastliðinn að auglýsa tillögu að breytingunni.
Á vef bæjarins segir að í aðalskipulagi 2018-2032 sé gert ráð fyrir reit fyrir verslun og þjónustustofnanir á landsvæðinu sem deiliskipulagið nær til. Það taki því mið af gildandi skipulagi.
Lóðir sameinaðar
Breytingarnar eru fjórþættar.
Í fyrsta lagi að sameina lóðirnar Norðurljósaveg 9 og 11 í eina lóð, Norðurljósaveg 9. Samanlagt byggingarmagn á lóðunum tveimur er óbreytt frá gildandi skipulagi, eða 19.700 fermetrar.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í þann 22 ágúst 2022.
Heimild: Mbl.is