Vegagerðin bauð út for- og verkhönnun fyrir endurbyggingu Vatnsdalsvegar (722) frá
Hringvegi að Undirfelli og Svínvetningabrautar frá Köldukinn að Tindum.
Verkið felst í því að for- og verkhanna Vatnsdalsveg á um 14,3 km langri leið frá Hringvegi að Undirfelli og Svínvetningabraut á um 6,1 km langri leið frá Köldukinn að Tindum. Samtals um 20,4 km.
Verkið felst einnig í að for- og verkhanna 26 minni heimreiðar, samtals um 3,9 km að lengd. Heildarlengd vega er því um 24,3 km. Á vegkaflanum skal auk þess hanna vegamót Vatnsdalsvegar og Hringvegar, aðlögun túntenginga og a.m.k. eitt búfjárræsi.
Eftirtaldir lögðu fram tilboð innan tilboðsfrests:
Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík
Mannvit hf., Kópavogi
VBV ehf., Kópavogi
Verkís hf., Reykjavík
VSB verkfræðistofa ehf., Hafnarfirði
VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík
Föstudaginn 25. ágúst 2023 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.