Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Hafa samið um sjóböð í Önundar­firði

Hafa samið um sjóböð í Önundar­firði

195
0
Sjöböðin eiga að opna á Hvítasandi í Landi Þórustaða, innst í Önundarfirði. AÐSEND

Samingur hefur verið undirritaður um land undir „umhverfisvæn sjóböð“ á Hvítasandi í landi Þórustaða innst í Önundarfirði. Böðin munu nýta varmaorku úr sjó til að hita laug, potta og sturtur og verða staðsett í gamalli sandnámu við hvíta skeljasandsströnd nálægt Holtsbryggju.

<>

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að endi gamallar flugbrautar verði nýttur sem bílastæði og muni böðin því einungis nýta raskað land undir framkvæmdir og byggingar.

Sérstaklega er gætt að því að raska ekki fjölbreyttu fuglalífi í nágrenni baðanna og þau eru felld inn í umhverfið og hönnun og efnisval tekur mið af einstakri náttúru svæðisins. Hönnuðir baðanna eru Son&Sen arkitektar en EFLA verkfræðistofa sér um tæknilega og verkfræðilega hönnun.

Leigutaki og framkvæmdaaðili er Blævængur ehf., en meðal samstarfsaðila þess eru landeigendur, EFLA, Vestfjarðastofa og Uppbyggingarsjóður Flateyrar. Teikningar og útfærsla sjóbaðanna hafa þegar verið kynntar íbúum á svæðinu.

Aðgengi að hinni vinsælu sjóbaðsaðsaðstöðu við Holtsbryggju mun með böðunum batna verulega, en bryggjan og nágrenni hennar eru vinsæll áningarstaður ferðamanna á Vestfjörðum,“ segir í tilkynningunni.

Björn Björnsson, bóndi á Þórustöðum og Áslaug Guðrúnardóttir, stjórnarformaður Blævængs ehf. skrifa undir leigusamning um land undir sjóðböðin á Hvítasandi.
AÐSEND

Haft er eftir Áslaugu Guðrúnardóttur, stjórnarformanni Blævængs, að næsta skref sé stofnun og fjármögnun félags um uppbygginguna ásamt nauðsynlegri skipulagsvinnu.

„Hér finnum við fyrir mikilli jákvæðni gagnvart þessu verkefni sem við höfum verið að vinna að í tvö ár. Við sjáum fyrir okkur að Hvítisandur verði mikilvægur segull í umhverfisvænni ferðaþjónustu Vestfjarða þar sem áhersla er á gæði þjónustu í sátt við umhverfi og samfélag þar sem byggingar og starfsemi falli að umhverfinu og virði það en skerði það ekki.

Þá erum við hér einnig í samstarfi við EFLU að þróa nýtingu á varmaorku úr sjó með varmadælum sem gæti í framtíðinni nýst til orkuöflunar á Vestfjörðum og öðrum köldum svæðum, en hér er viðvarandi raforkuskortur sem slík tækni gæti átt þátt í að leysa,“ er haft eftir Áslaugu.

Heimild: Visir.is