Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraness þann 17. júlí s.l. var rætt um útboð á byggingarétti á Sementsreitnum – og í þeirri umræðu var hugmyndafræði um byggingu á ráðhúsi á Sementsreitnum kynnt.
Guðmundur Ingþór Guðjónsson formaður ráðsins segir í samtali við Skagafréttir að ráðið hafi farið yfir stöðuna eins og hún mögulega gæti orðið. Engar ákvarðanir hafi verið teknar um byggingu ráðhúss á reitnum.
Bæjarskrifstofur Akraness hafa á undanförnum misserum verið í bráðabirgðaaðstöðu á Dalbraut 4 – en húsnæðið við Stillholt þar sem að skrifstofurnar voru til margra ára er ekki talið ákjósanlegur kostur vegna loftgæðavandamála.
Bæjaryfirvöld eru að skoða alla þá möguleika sem eru í stöðunni til að bæta starfsmannaaðstöðu á Dalbraut 4 þar sem að bæjarskrifstofurnar eru í dag. Aðstaðan er ekki góð.
„Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs hefur fengið það verkefni að vinna málið áfram en engar ákvarðanir hafa verið teknar, hvorki hvað verður byggt, né hvernig. Við erum einfaldlega að skoða alla þá möguleika sem eru í stöðunni – vinna í málum er snúa að okkur öllum eins og uppbyggingu á því svæði sem er áhugavert að byggja á og skoða betri starfsumhverfi fyrir starfsfólk Akraneskaupstaðar.