Home Fréttir Í fréttum Ekki klefar heldur snagar: „Þetta er bara fyrsti áfangi framkvæmda“

Ekki klefar heldur snagar: „Þetta er bara fyrsti áfangi framkvæmda“

109
0
Pallurinn kemur í stað þess sem var illa farinn. Hann er dreginn til baka til að stuðla að betra útsýni og er efniviðurinn lerki sem tekur nokkra mánuði að veðrast og grána og mun það þá falla einstaklega vel að umhverfinu að sögn arkitekts.

Fram­kvæmdir sem hafnar eru í Land­manna­laugum eru fyrsti á­fangi í heildar endur­bótum á Land­manna­lauga­svæðinu, byggja á verð­launa­til­lögu VA arki­tekta og Land­mótunar frá 2014 og munu að endingu falla ein­stak­lega vel að um­hverfinu.

<>

Til­efnið er gagn­rýni Karenar Kjartans­dóttur, al­manna­tengils, á tvo skúra sem reistir hafa verið í Land­manna­laugum. Karen taldi að um væri að ræða nýja búnings­klefa og sagði þá skyggja á út­sýni til fjalla. Sér kæmi á ó­vart hve klaufa­lega væri staðið að fram­kvæmdunum.

„Það er ó­trú­lega eðli­legt að fyrstu við­brögð fólks séu nei­kvæð þegar ein­hverju er breytt sem því er annt um og maður skilur það alveg,“ segir Magda­lena Sigurðar­dóttir, arki­tekt hjá VA Arki­tektar. Hins vegar verði að vanda til verka í umfjöllun um arkitektúr, of algengt sé að hún sé á neikvæðum nótum og ekki byggður á staðreyndum.

Magdalena tekur fram að húsin sem Karen hafi gagn­rýnt séu þannig ekki búnings­klefar heldur yfir­byggðir snagar fyrir hand­klæði og per­sónu­lega muni. Þeir komi í stað gamla pallsins sem hafi verið illa farinn og gjarnan fullur af drasli.

Þjónustuhús verður um 200 fm og inniheldur aðstöðu sem tengist manngerðri laug og þjónar tjaldsvæðinu. Þar verður fatageymsla, sturtur og þurrksvæði og snyrtingar

Ekki verði skyggt á laugarsvæðið

„Þetta er bara fyrsti á­fangi fram­kvæmda. Þarna verður byggð ný að­staða hinu­megin við Námskvísl og það stendur til að minnka þau mann­virki sem eru á svæðinu og kofa­byggðina við gamla skálann og í raun færa náttúruna þar aftur í upp­runa­legt horf, þannig bíla­stæði, búnings­að­staða og nestis­að­staða sé hinu­megin við Námskvísl en ekki inn á sjálfu svæðinu.“

Þannig verði búnings­klefar hinu­megin við kvíslina, ein­mitt svo þeir skyggi ekki á laugar­svæðið. Magda­lena segir nýja pallinn stað­settan á sama stað og þann gamla, en vera dreginn að­eins til baka til að stuðla að betra út­sýni.

„Pallarnir og skýlin eru úr lerki, sem tekur nokkra mánuði að veðrast og grána og munu það þá falla ein­stak­lega vel að um­hverfinu,“ segir Magda­lena. Mikil vinna hafi farið í til­löguna, vandað hafi verið til verka og sam­ráð haft við Um­hverfis­stofnun, Land­vernd og Ferða­fé­lag Ís­lands.

Hægt er að kynna sér vinningstillögur VA arkitekta og Landmótunar hér: 

Heimild: Visir.is