Vegagerðin býður hér með út kantslátt á Suðursvæði árin 2023 og 2024, á svæði
þjónustustöðvarinnar á Selfossi.
Áætlað magn kantsláttar er samtals um 750 km á ári.
Gildistími samnings er til 30. september 2024. Heimild er til framlengingar samnings í allt að
tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum7. júlí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 9. ágúst 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.